Augljóst er að úrslitin í leiðtogakjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík merkja háværa kröfu um breytta borgarpólitík flokksins, slíkir reyndust yfirburðir Eyþórs Arnalds þegar öll atkvæði voru talin, en niðurstaðan jafngildir því að sitjandi fulltrúum flokksins hafi verið hafnað.
Sigur Eyþórs er glæsilegur, en að sama skapi vekur athygli hvað borgarfulltrúarnir Áslaug Friðriksdóttir og Kjartan Magnússon fá hlutfallslega lítið fylgi miðað við nýliðann í borginni, einkum Áslaug sem margir höfðu spáð að næðu langtum hærra flugi og ætti jafnvel einhverja möguleika á að velgja Eyþóri undir uggum.
Lokatölur voru þær að Eyþór hlaut 2.320 atkvæði í efsta sætinu, Áslaug María Friðriksdóttir hlaut 788 atkvæði, Kjartan Magnússon 460 atkvæði, Vilhjálmur Bjarnason 193 atkvæði og Viðar Guðjohnsen rak lestina með 65 atkvæði, að því er kemur fram á vefsíðu Sjálfstæðisflokksins.