Iðnþing Samtaka iðnaðarins sem hefst á Hilton Reykjavík Nordica í dag klukkan 14:00 ber yfirskriftina Stóra myndin, en þar verður farið yfir helstu áskoranir sem iðnaðurinn stendur frammi fyrir og við hverju má búast í framtíðinni.
Á þinginu koma saman leiðtogar fyrirtækja, sérfræðingar og ráðherrar til að ræða um samkeppnishæfan iðnað í ljósi meginstrauma í atvinnulífinu og samfélaginu. Í tilkynningu samtakanna vegna Iðnþingfsins segir að hraðar breytingar í loftslags- og umhverfismálum hafi víðtæk áhrif á sama tíma og ein mesta tæknibylting sögunnar standi nú yfir. Þá séu krefjandi áskoranir framundan sem varði breytingar á samsetningu vinnuafls þar sem mæta þurfi stöðugt nýjum þörfum. Á þinginu eigi að leita svara við því hvernig atvinnulífið bregðist við þessum áskorunum og hver séu mikilvægustu verkefnin til að ná árangri.
Tólf fyrirtæki úr iðnaðinum ætla að sýna nýjustu lausnirnar sínar á þinginu; Össur ætlar að smíða gervifót á notanda og einstaklingur með gervifót, sem stýrt er með hugarafli, verður á staðnum og sýnir hvernig þessi tækni virkar, Marel sýnir nýju vatnsskurðarvélina Flexicut, CCP verður með nýja sýndarveruleikaleikinn Gunjack, EFLA verkfræðistofa sýnir dróna og nýja myndgreinatækni, ORF líftækni verður með Visia tæki sem gerir húðmælingar, les raka og öldrun húðarinnar, Iðan verður með nýjan suðuhermi, Tækniskólinn verður með spilakassa í fullri stærð, MTHojgaard sýnir nýja lausn tengda nýsköpun í byggingariðnaðinum, Marorka sýnir orkustjórnunarkerfi fyrir skip, Eimverk kynna Vor Gin, Flóki Whisky & Víti aquavite, Ölgerðin kynnir nýjan drykk með heitinu Sólbert og Vizido verður með nýtt app sem byggir á því að taka mynd til að muna.
Dagskrá Iðnþings SI 2016
Kl. 14.05 Ávarp Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns SI
Kl. 14.20 Ávarp iðnaðarráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir
Kl. 14.35 SAGAN
Sagnfræðingarnir Guðni Th. Jóhannesson og Stefán Pálsson ræða saman um sögu iðnaðar og atvinnulífs á léttum nótum
Kl. 14.55 GRÆNU LAUSNIRNAR
Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska
Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls
Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, fjármálastjóri Carbon Recycling International
Kl. 15.15 TÆKNIBYLTINGIN
Ragnheiður H. Magnúsdóttir, Business Manager Inside Sales, Marel
Ólafur Andri Ragnarsson, Technical Visionary, Novomatic Lottery Solutions
Soffía Theódóra Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, Greenqloud
Kl. 15.35 FÓLKIÐ
Gestur Pétursson, forstjóri Elkem Ísland
Kristinn D. Grétarsson, forstjóri Orf líftækni
Þóranna Jónsdóttir, deildarforseti viðskiptadeildar HR
Kl. 15.55 STÓRA MYNDIN
Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri JÁVERK
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra
Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI