Á iðnþingi Samtaka iðnaðarins kom Birgir Örn Birgirsson hjá Dominos Pizza þriðja árið í röð fram með breytingartillögu við ályktun iðnþings hvað varðar afstöðu til ESB. Hann hefur í öll skiptin lagt til að iðnþing samþykkti að Ísland skyldi ekki sækja um aðild að ESB eða leggja aðildarferlið fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í öll skiptin hefur tillaga hans verið felld með yfirburðum. Örfáir hafa kosið með tillögum hans öll þrjú árin enda hefur stefna Samtaka iðnaðarins verið skýr allt frá stofnun fyrir rúmum 20 árum. Samtökin hafa verið og eru Evrópusinnuð og alþjóðlega sinnuð og mótfallin einangrunarhyggju.
Á Iðnþingi í gær kusu einungis 8 af 100 fundarmönnum með tillögu Birgis. Hann fékk stuðning frá Ágústi Andréssyni, forstöðumanni hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki, sem fór í ræðustól og mælti með tillögu Birgis. Ágúst var í framboði til stjórnar Samtaka iðnaðarins en var talsvert langt frá því að ná kosningu.
Iðnþing samþykkti að nauðsynlegt væri að tryggja að framhald aðildarviðræðnana við ESB verði lagt í dóm þjóðarinnar.
Iðnþing felldi tillögu gegn esb þriðja árið í röð
Fleiri fréttir
Nýjast