Samflot iðnaðarmanna og Samtök atvinnulífsins undirrituðu kjarasamninga í Karphúsinu á öðrum tímanum í nótt eftir ströng fundarhöld síðustu daga. Samningarnir gilda til 1. nóvember 2022.
Sex félög og sambönd stóðu að samfloti iðnaðarmanna í viðræðunum. Þetta eru Rafiðnaðarsamband Íslands, Samiðn, Grafía, Matvís, Félag hársnyrtisveina og VM - félag vélstjóra og málmtæknimanna. Samtals eru um 13 þúsund félagsmenn í þessum samtökum.
„Þetta er góð tilfinning að vera kominn með kjarasamning í höfn hjá okkur. Þetta er búið að vera löng og ströng viðræðulota, og það er verulega ánægjulegt að klára þetta,“ segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, talsmaður samflotsins, í samtali við Mbl.is.
Kristján segir að það sem sé einna stærst við samninginn sé að „okkur er að takast að hækka lægstu laun iðnaðarmanna sérstaklega, og styðja við bakið á þeim sem eru í hvað verstri stöðu. Okkur er að takast að stytta vinnutímann, og erum hér sennilega með meiri vinnutímastytting[ar] sem hafa sést um langan tíma.“
„Í lok samningstímans geta félagsmenn verið að sjá 36 klukkustunda vinnuviku með ákveðnum breytingum á vinnuskyldunni. Við erum að taka upp breytt fyrirkomulag sem getur stuðlað að því að stytta heildarvinnutíma manna en jafnframt að tryggja þeim sem vinna hvað mest langan vinnudag, að tryggja þeim meiri verðmæti með breytingu á yfirvinnuálögum,“ bætir hann við.
Kristján segir að nú verði unnið að því að útbúa kynningarpakka og að vinnan að því muni hefjast í dag. Samningarnir verða svo kynntir fyrir félagsmönnum á fundum í næstu og þarnæstu viku.
Að því loknu munu félagsmenn greiða atkvæði um samningana og verður niðurstaða atkvæðagreiðslunnar kynnt 22. maí. „Þá sjáum við hvernig viðbrögð við fáum frá félagsmönnum,“ segir Kristján.
„Þetta eru sex kjarasamningar sem var verið að gera og það tekur tíma að lesa þetta allt yfir. Og það er í rauninni það sem gerir það að verkum að þetta tók þennan tíma,“ segir hann að lokum, aðspurður um þann tíma sem viðræðurnar tóku.