Icelandair var í fullum rétti gegn flugliðum

Icelandair var í fullum rétti, að mati Félagsdóms, þegar það ákvað að taka fyrir hlutastörf flugliða hjá félaginu og gera starfsfólki skylt að sinna fullu starfi. Flugfreyjufélag Íslands stefndi Icelandair vegna þessa máls. Félagsdómur kvað upp úrskurð í málinu í dag.
 

Flugfreyjufélagið taldi ákvörðun Icelandair brot á kjarasamningi. 118 flugfreyjur af 900 hjá Icelandair eru í hlutastarfi og um áramótin verða þær að taka að sér fullt starf eða hætta. Flugfreyjur sem eru 55 ára og eldri og þær sem hafa unnið í 30 ár eða lengur hjá félaginu, geta þó verið áfram í hlutastörfum ef þær vilja.

Dómur félagsdóms er endanlegur og honum er ekki hægt að áfrýja til hærra dómstigs. Flugfreyjufélaginu er gert að greiða Icelandair 450.000 krónur í málskostnað. Icelandair mótmælti því fyrir félagsdómi að ákvörðun fyrirtækisins væri brot á kjarasamningi. Samráð hafi verið haft við flugliða um fyrirhugaðar breytingar. 

Nánar á

http://www.ruv.is/frett/icelandair-var-i-fullum-retti-gegn-fluglidum