Icelandair nær til 700 milljóna

\"Þótt við höf­um aukið markaðshlut­deild­ina okk­ar á Norður-Atlants­haf­inu á markaðnum milli Evr­ópu og Norður-Am­er­íku und­an­far­in ár erum við ennþá mjög smá í sam­an­b­urði við stærstu flug­fé­lög­in og ein­ung­is með um 1% markaðshlut­deild.“

Þetta seg­ir Birk­ir Hólm Guðna­son, fram­kvæmda­stjóri Icelanda­ir, í viðtali í ViðskiptaMogg­an­um í dag um sókn fé­lags­ins í farþega­flutn­ing­um. Flug­fé­lagið fjár­fest­ir mikið í markaðsstarfi er­lend­is til að koma Icelanda­ir og Íslandi á kortið.

Fé­lagið hef­ur verið framar­lega í því að nota sam­fé­lags­miðla í sínu markaðsstarfi og seg­ir Birk­ir Hólm að nýj­asta markaðsher­ferðin hafi náð til tæp­lega 700 millj­óna manna: \"Það er mik­il­vægt að vera vel með á nót­un­um á sam­fé­lags­miðlun­um því þar eru í raun tæki­færi fyr­ir lítið fé­lag eins og Icelanda­ir á þess­um stóra markaði að koma sér á fram­færi.“

Forráðamenn Icelandair stefna að því að auka framboð á flugferðum félagsins um 18% á næsta ári, en tvær 262 sætja 767-300 farþegaþotur bætast í flugflota félagsins árið 2016.

Vöxtur Icelandair á síðustu misserum hefur verið ævintýri líkastur og haldist í hendur við aukinn straum ferðamanna til landsins. Eftir því hefur verið tekið hvað félaginu hefur verið stýrt af mikilli ábyrgð og framsýni á þessum uppgangstímum sem, vel að merkja, getur verið jafn erfitt að höndla og þegar kreppir að.

Félagið hefur nánast undantekningalaust sprengt áætlanir sínar á síðustu árum - og er árið í ár þar engin undantekning, en farþegavöxturinn það sem af er ári er 17%. Ef fram fer sem horfir mun félagið flytja 3,1 milljón farþega á yfirstandandi ári, sem er metfjöldi í langri sögu félagsins. 

Icelandair er nú að bæta við þremur nýjum áfngastöðum; Chicago í Bandaríkjunum, Montreal í Kanada og Aberdeen í Skotlandi og er búist við að flugferðum félagsins fjölgi um 14% á næsta ári og farþegar þess verði vart undir hálfri fjórðu milljón.