Í Markaðstorginu sem frumsýnt var í gærkvöld fljúgum við til Kansas City og ræðum við Björgólf Jóhannsson forstjóra Icelandair en hann segir að félagið sé með 1,8% af Atlantshasfluginu. Þá sé takmark Icelandair að þétta leiðakerfið enn frekar í þessum tveimur heimshálfum, Ameríku og Evrópu en horfa jafnframt til Asíumarkaðar á komandi árum. Björgólfur óttast ekki minnkandi ferðamannastraum til Íslands, innviðann vegna sé í lagi að það dragi úr aukningunni- menn verða að hafa í huga Ísland verði áfram í efri mörkum meðaltalsfjölgunar ferðamanna í heiminum - og það megi vel við það una.
Þátturinn er endursýndur í dag og einnig aðgengilegur á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.