Icelandair hefur gengið frá leigu á tveimur Boeing 767 breiðþotum. Breiðþoturnar verða leigðar út september, en það er gert til að tryggja að flugáætlun félagsins raskist sem minnst í kjölfar kyrrsetningar þriggja Boeing 737 MAX flugvéla sem félagið á. Mbl.is greinir frá.
Samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fyrri flugvélin í rekstur um miðjan apríl og sú síðari snemma í maí. Vélarnar eru báðar 262 sæta breiðþotur með tveimur farrýmum og afþreyingarkerfi.
Icelandair vinnur einnig að því að fá leigða þriðju flugvélina sem myndi þá bætast við flotann í sumar. Þá vinnur félagið að endurskoðun flugáætlunar sinnar fyrir sumarið eftir gjaldþrot WOW air. Í tilkynningunni til Kauphallarinnar segir að þegar 737 MAX flugvélarnar komi í rekstur hafi félagið möguleika á að auka framboð í háönn frá því sem áður var áætlað þar sem breiðþoturnar hafi bæst í flotann.