Stjórn Icelandair Group hefur gert kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í flugfélaginu WOW air. Kaupin eru m.a. gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Icelandair Group, samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair til Kauphallar Íslands.
Sem gagngjald fyrir hlutafé WOW Air munu hluthafar WOW air, að uppfylltum skilyrðum, eignast alls 272.341.867 hluti eða sem samsvarar um 5,4% hlutafjár Icelandair Group eftir viðskiptin. Þar af eru 178.066.520 hlutir eða sem nemur 3,5% hlutafjár gagngjald fyrir hið selda hlutafé. Það gagngjald getur hækkað í 4,8% og lækkað í 0,0% út frá ákveðnum forsendum í tengslum við áreiðanleikakönnun. 94.275.347 hlutir eða sem samsvarar 1,8% hlutafjár eru gefin út til seljenda vegna breytingar á víkjandi láni í hlutafé. Seljendur hafa skuldbundið sig til að halda hlutum sínum í Icelandair Group í a.m.k. 6 mánuði og helming hlutanna í a.m.k. 6 mánuði til viðbótar.