Icelandair hótel ætla að gefa til baka til samfélagsins og bjóða íslendingum í fría gistingu og morgunverð

Icelandair hótel hyggjast bjóða Íslendingum í fría gistingu og morgunverð á hótelum sínum um allt land helgina 7-9 febrúar. Alls verður gefin gisting í 100 herbergjum ásamt morgunverði. Þetta er í þriðja sinn sem að félagið gefur gistingu með þessum hætti til samlanda sinna, og vilja með því þakka þeim fyrir höfðinglegar móttökur erlendra ferðamanna.

„Eins og allir vita hefur uppgangur ferðaþjónustu á Íslandi verið mikill undanfarin ár, og höfum við hjá Icelandair hótelum nýtt tímann vel til uppbyggingar á okkar þjónustu. Við leggjum mikið upp úr því að gera heimsóknir okkar gesta sem ánægjulegasta, en gestrisni Íslendinga heilt yfir skiptir auðvitað sköpum þegar kemur að upplifun ferðamanna af landi og þjóð. Ímynd Íslands einkennist auðvitað af ósnortinni náttúru landsins, en ekki síður af vinalegu viðmóti Íslendinga, og það ber okkur sem störfum í þessu fagi að þakka fyrir. Einnig teljum við afar mikilvægt að leyfa samlöndum okkar að kynnast því að eigin skinni hvernig það er að vera ferðamaður í eigin borg eða landi. Það er ekki langt síðan að ólöglegt var fyrir Reykvíkinga að gista á hótelum borgarinnar, og fjölmargir hafa aldrei séð inn á hótelherbergi hér í bæ, hvað þá prófað að gista. Þessu viljum við breyta, um leið og við segjum takk fyrir okkur, og takk fyrir gestrisnina og gleðina“, segir Hildur Ómarsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og viðskiptaþróunar hjá Icelandair hótelum.

Samkvæmt Hildi eru hótel í rekstri félagsins nokkuð vel bókuð um þessar mundir. Þau 100 herbergi sem gefin verða í ár er því dreift á milli þeirra hótela sem eiga laust umrædda helgi. Það vekur athygli að þau hótel sem eru seld á hæsta verði eru bæði uppbókuð umrædda helgi, en það eru Canopy Reykjavík og Reykjavík Konsúlat hótelið, en þau eru bæði rekin í sérleyfi við Hilton Worldwide. Önnur hótel í rekstri félagsins eru: Icelandair hótelkeðjan, alls 7 hótel, Eddu sumarhótelkeðjan, Alda Hótel Reykjavík og Hilton Reykjavík Nordica. Með frírri gistingu og morgunverði fyrir tvo í eina nótt, mun einnig fylgja frír aðgangur að völdum söfnum og ferðamannastöðum í Reykjavík og á landsbyggðinni. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt geta skráð sig til leiks á vef Icelandair hótela, en þeir heppnu verða dregnir út 3 febrúar.

„Fólk hefur verið himinlifandi og þakklát fyrir þetta uppátæki okkar í gegnum árin og umsagnir gesta okkar verið gríðarlega jákvæðar. Til að mynda voru flestir höfuðborgarbúar sammála um að sjá borgina sína í nýju ljósi sem ferðamaður í Reykjavík. Við hlökkum til að fá nýjar umsagnir í ár úr Reykjavík sem og frá Akureyri, Mývatnssveit og Egilsstöðum.“ segir Hildur að lokum.