Samstæðan segir í tilkynningu sem hún sendi út fyrr í dag að nú verði gripið til ýmissa aðgerða í rekstri samstæðunnar. Aðgerða sem gert er ráð fyrir að skili hagræðingu og auknum tekjum.
Áfram gerir samstæðan ráð fyrir hóflegum innri vexti árið 2017. Að mati stjórnenda samstæðunnar eru langtímahorfur góðar. Í takt við stefnu samstæðunnar var efnahagsreikningur hennar sterkur í árslok 2016.
Samkvæmt drögum að ársreikningi 2016 er eiginfjárhlutfall samstæðunnar ríflega fjörutíu prósent. Handbært fé og markaðsverðbréf eru tvöhundundruð og fimmtíu milljónir Bandaríkjadollara.
Fram kemur í tilkynningunni að bókanaflæði Icelandair sé til hins verra. Bókanir séu hægari en gert var ráð fyrir. Þá hafi meðalfargjöld á mörkuðum lækkað umfram spár.
Þessa þróun má helst rekja til aukinnar samkeppni. Einnig má leiða líkur að því að óvissa vegna breytinga í alþjóðastjórnmálum hafi áhrif á eftirspurn. Gjaldmiðlar þróast á óhagstæðan máta miðað við fyrri ár. Þá hækkar eldneytisverð.
Verkfall sjómanna á Íslandi hefur neikvæð áhrif á fraktstarfsemi samstæðunnar.
Á móti kemur að horfur í hótelstarfsemi samnstæðunnar eru góðar.
Samstæðan er samt vel í stakk búin til að takast á við þær sveiflur sem eiga sér stað í rekstraumhverfi hennar segir í lokaorðum tilkynningarinnar. Nánar á www.globenewswire.com