Icelandair flýgur starfsmönnum wow heim

Öllu starfsfólki WOW air sem er nú strand erlendis verður flogið heim af Icelandair, starfsfólkinu að kostnaðarlausu. Þær aðgerðir munu þó ekki ganga snurðulaust fyrir sig þar sem búið er að loka fyrir öll greiðslukort WOW og félagið getur því ekki greitt fyrir fólksflutninga milli flugvalla. Þá er starfsfólk WOW hvatt til þess að skrá sig út af hótelum í snatri, líkast til vegna sömu greiðsluerfiðleika.

Þetta kemur fram í tölvupósti frá einum yfirmanna WOW til starfsfólks, sem Hringbraut hefur undir höndum. Þar segir að áætlað hafi verið að flytja starfsfólk í gegnum mismunandi leiðir en að bankarnir hafi séð það fyrir og því lokað öllum greiðslukortum flugfélagsins. Mælt er með að skrá sig út af hótelum eins fljótt og mögulegt er til að koma í veg fyrir möguleg rifrildi við starfsfólk hótelanna.

Þar sem WOW air og Icelandair deila ekki öllum sömu áfangastöðum þýðir þetta að sumt starfsfólksins þarf að verða sér úti um flug milli borga og landa. Sem dæmi þarf starfsfólk sem er fast í Montreal að koma sér til Boston og fljúga þaðan með vél Icelandair til Íslands, þar sem Icelandair flýgur einungis til Montreal frá maí til október.