Ef horft er til síðasta áratugar hefur íbúum Suðurnesja fjölgað hlutfallslega mest á Íslandi, eða um nálega 29%. Íbúafækkunin hefur hins vegar verið mest á Vestfjörðum, en þaðan hefur nálega tíundi hver íbúi flust frá 2005.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íslandsbanka um stöðu sveitarfélaga á landinu en þar segir að af átta íbúasvæðum landsins hafi fækkað í tveimur þeirra, á Vestfjörðum sem fyrr segir og á Norðurlandi vestra þar sem 6% fækkun hefur verið á undanliðnum tíu árum. Næstmesta íbúafjölgunin á þessum tíma hefur verið á höfuðborgarsvæðinu, eða sem nemur næstum 15%, en þar á eftir kemur Suðurland með nærri 12% fjölgun, Vesturland með hartnær 8% fjölgun, Norðurland eystra með um 3% fjölgun og loks Austurland þar sem íbúum hefur fjölgað um 1,7% frá árinu 2005.
Ef aðeins er horft til síðustu tveggja ára er þróunin í sömu veru, mest er fjölgunin á Suðurnesjum, eða um 3,9%, næst mest á Reykjavíkursvæðinu, eða 2,7%, em þar á eftir koma Suðurlands, 2,2%, Veesturland, 1,2%, Nirðurlad eystra, 0,8% og Austurland, 0,5%.
Fækkunin er mest á Norðurlandi vestra ef aðeins er horft til síðustu tveggja ára, eða sem nemur 1,8% og á Vestfjörðum hefur fækkunin á sama tíma verið 0,9%.