Íbúðirnar vantar

Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur hjá Reykjavík Economics segir að nýju úrræðin fyrir ungt fólk til fasteignakaupa séu góður valkostur fyrir ungt fólk. Hann segir að fasteignaverð hækki líkast til og vextir verði þó enn þeir sömu. Seðlabankinn mun þó hafa öflugra stýritæki með stýrivöxtum með þessum aðgerðum. Hann segir hins vegar vandamál hve lítið er til af minna húsnæði sem hentar þessum hópi.

Áform eru hjá borginni að byggja en það bólar lítið á þeim framkvæmdum. Magnús Árni bendir á að þetta þurfi að gerast hratt, sveitarfélög þurfi að bregðast mun hraðar við svo framboð verði nægt af fasteignum þegar þessi kynslóð sem úrræðin beinast að hafi raunverulegt val til að nýta þau.

Til að leysa vanda ungs fólk á fasteignamarkaði segir Magnús Árni þó ekki nóg að greiða þeim leið að lánum eins og nýju séreignasparnaðarleiðirnar bjóða upp á, heldur þurfi að vera líka nóg framboð af íbúðum af minni gerðinni fyrir þennan hóp. EKki lítur út fyrir að framboðið muni aukast á næstunni. Magnus Árni verður á Hringbraut í kvöld.