Teymi hryðjuverkamanna sem lögreglan í París hafði hendur í hári eftir umsátur í gær hafði í fórum sínum fjölda vopna og var vel búið til árása að sögn saksóknara Parísarborgar sem efndi til blaðamannafundar um málið í kvöld.
Í frétt á mbl.is í gærkvöld er haft eftir honum að rannsóknin eftir hryðjuverkin á föstudag hafi gengið vel og árásin í nótt væri sönnun þess: \"Hryðjuverkateymið var gert óvirkt og eftir að hafa kynnst skipulagi þeirra og fjölda vopna, er ljóst að teymið var vel í stakk búið til árása. Við fundum heilt stríðsvopnabúr, með Kalashnikov rifflum, skotfærum og sprengjum,“ sagði saksóknarinn á fundinum.
Washington Post hefur eftir heimildarmönnum sínum, tveimur háttsettum evrópskum leynilögreglumönnum, að meintur höfuðpaur á bak við árásirnar á föstudag hafi látist í umsátrinu í morgun.
Haft er eftir saksóknaranum, Francois Molins í mbl.is að bifreiðarnar þrjár, sem leigðar voru af Abdeslam bræðrum, hafi nálgast skotmörk sín \"nánast eins og bílalest“. Hann segir einnig að farsími hafi fundist í ruslatunnu bak við Bataclan tónleikahöllina. Úr honum hafi verið send skilaboðin: \"Við erum komnir og erum að byrja“. Rannsakendur reyni nú að komast að því hver hafi tekið á móti skilaboðunum.
Íbúðin í St. Denis hverfinu þar sem lögreglan réðst til atlögu seint í nótt er talin hafa mögulega verið íverustaður Abu Oud, að sögn Molins. Vísar hann þar til meints höfuðpaurs á bak við árásir föstudagsins.
Misjafnt hefur verið eftir fjölmiðlum hvort notast sé við fullt nafn hins meinta höfuðpaurs eða að það sé skilmerkilega stytt í Abu Oud. Til skýringar skal árétt að um sama manninn er að ræða, eins og segir í fyrrgreindri frétt mbl.is í gærkvöld.