Íbúðin ekki útbúin til nauðgana

Hringbraut hefur fengið svör frá lögreglustjóra í Reykjavík við tveimur spurningum sem kviknað hafa síðustu daga vegna svokallaðs nauðgunarmáls í Reykjavík.

Annars vegar spurði Hringbraut Öldu Hrönn Jóhannsdóttur yfirlögfræðing hjá embættinu hvort ekkert hafi komið fram við rannsókn lögreglu eftir að Fréttablaðið birti forsíðufrétt sína um útbúna nauðgunaríbúð í Hlíðunum, sem bendi til að blaðið fari með rétt mál? Hvort það væri þess vegna sem mennirnir tveir væru ekki kallaðir heim en þeir dvelja báðir í útlöndum núna?

„Varðandi fyrri spurninguna  þá  höfum við svarað því til að sumt af því sem fram kom í Fréttablaðinu hafi ekki verið á rökum reist og vísað sérstaklega til þess að í fyrirsögn kom fram að \"íbúðin hafi verið útbúin til nauðgana\" en sú fullyrðing er ekki í samræmi við gögn málsins,“ svarar lögregluembættið.

Í öðru lagi spurði Hringbraut vegna fréttar okkar síðastliðinn mánudag sem höfð var eftir nemendum úr HR að mennirnir tveir sem kærðir hafa verið fyrir nauðgun hefðu gert fleiri nauðgunartilraunir, hvort það mál væri í rannsókn. Svo virðist ekki samkvæmt svörum lögreglu.

„Varðandi síðari spurninguna þá voru ekki komnar inn fleiri kærur síðast þegar ég vissi,“ sagði Alda Hrönn hjá lögregluembættinu í gærkvöld.