Vextir íbúðarlána hafa almennt ekki verið jafn lágir á Íslandi og nú segir í frétt Morgunblaðsins í dag. Það á sinn þátt í hækkun fasteignaverðs.
Blaðið vitnar í Ingólf Bender hagfræðing SI - Samtaka iðnaðarins. Ingólfur segir að áhrif lágra vaxta séu ekki að fullu komin fram.
Ingólfur segir að áhrifin muni sjást á næstunni á húsnæðismarkaðnum. Hann telur að lágir vextir ýti undir íbúðakaup á næstu misserum.
rtá
Nánar www.mbl.is