Íbúðaverði svipar til þensluáranna

Viðvarandi skortur á íbúðahúsnæði hefur leitt til allt að 30% hækkun fasteignaverðs á höfuðborgarsvcæðinu. Ný rannsókn Samtaka iðnaðarins ben dir til þess að næstu árin verði uppsafnaðri þörf fyrir húsnæði ekki mætt. Því er hætt við að verð á húsnæði eigi eftir að hækka enn frekar.


Að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag vekur sérstaka athygli hvað húnsæðisverð er orðið hátt í úthverfum. Blaðið segir að meðalverðið í Grafarvogi nálgist 300 þúsund á fermetrann og að dæmigerð 100 fermetra íbúð seljist nú þar á 30 milljónir króna.


Víða á miðborgarsvæðinu er fermetraverðið nærri 400 þúsundum króna og slær á nokkrum vinsælustu stöðunum upp í 500 þúsund krónur. Það merkir með öðrum orðum að 100 fermetra íbúð í neðanverðum Þingholtunum, svo dæmi sé tekið, seljist auðveldlega á 50 millónir króna.


Gangi nýleg spá Landsbankans eftir verður raunverð íbúðahúsnæðis senn orðið jafnhátt og 2006 þegar boginn á markaði var að nálgast fulla spennu.