Söluverð 100 fermetra íbúða í sex póstnúmerum í Reykjavík hefur hækkað um 2,4 til 4,1 milljón króna að meðaltali frá öðrum ársfjórðungi 2014 og fram á mitt þetta ár.
Þetta kemur fram í ítarlegri úttekt Morgunblaðsins í dag á fasteignamarkaðnum. Þar segir að söluverðið á öðrum ársfjórðungi í ár hafi verið hæst í miðborginni, eða ríflega 400 þúsund krónur á fermetra. Blaðið vitnar hér í útreikningam Þjóðskrár Íslands, sem gerðir voru að beiðni þess, en tölfræðin að tarna virðist öll vera á einn veg; verð á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu er að rjúka upp.
Sé litið lengra aftur kemur í ljós að söluverð íbúða í 101 Reykjavík hefur hækkað um 150 þúsund krónur á fermetrann frá fyrsta ársfjórðungi 2010. Hefur verð á dæmigerðri 100 fermetra íbúð því hækkað um 15 milljónir á tímabilinu. Með tillti til verðbólgu er raunhækkunin um 10 milljónir.