Hægt hefur verulega á verðhækkunum á íbúðahúsnæði á síðustu vikum og virðist markaðurinn vera að ná jafnvægi eftir langt og nánast fordæmalaust verðhækkunarskeið.
Þetta kemur fram í máli Guðbergs Guðbergssonar, fasteignasala á Bæ, sem rekur stofur jafnt í Kópavogi og á Selfossi, en hann segir að farið sé að bera á því að fólk bjóði undirverð í eignir, í stað þess að kaupa þær á yfirverði eins og tíðkast hefur um nokkurra missera skeið.
Þetta gerist þrátt fyrir að skortur sé ennþá á íbúðahúsnæði á höfuðborgarsvæðinu; kaupendur hafi einfaldlega tekið í taumana og sætti sig ekki lengur við það að verð á eignum sé langt yfir eðlilegu markaðsverði.
Í Afsali í kvöld er einnig rætt við Björn Traustason, framkvæmdastjóra fasteignafélagsins Bjargs, sem rekið er af Alþýðusambandi Íslands og BSRB, en það ætlar að bjóða fólki öruggt langtímaleiguhúsnæði í samræmi við tekjur þess og afkomu.
Afsal byrjar klukkan 20:00 í kvöld.