Íbúðaskuldir þær mestu frá 2009

Íbúðaskuldir heimilanna hafa ekki vaxið meira að raunvirði á einu ári síðan 2009 að því er fram kemur í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs - og ruv.is vitnar til í dag. Skuldir í febrúar síðast liðnum voru tæplega sex prósent hærri að raunvirði síðan í febrúar í fyrra.

 

Ársbreyting á heildaríbúðalánum heimila í síðastliðnum febrúar nam 5,6% og er sú hæsta að raunvirði a.m.k. frá árinu 2009. Árin 2011 til 2016 varð raunverðslækkun á heildaríbúðaskuldum heimila. Í byrjun árs í fyrra snerist sú þróun við og við tók hækkun, sem mældist mest í febrúar í ár samkvæmt upplýsingum Íbúðalánasjóðs. Í lok mars námu útistandandi íbúðalán heimilana 1.531 milljarði króna. Á sama tíma árið 2009 námu þær að raunvirði 1.642 milljörðum króna. 

Íbúðaverð heldur áfram að hækka. Á höfuðborgarsvæðinu hækkaði það um 1,4% fyrstu þrjá mánuði ársins en það hækkaði um 7,7% frá marslokum í fyrra til marsloka í ár. Mesta árshækkun eftir póstnúmerum á höfuðborgarsvæðinu var á Seltjarnarnesi, um 15%, og Mosfellsbæ, 14%. Síðustu þrjá mánuði hefur íbúðaverð hækkað mest í 101 Reykjavík eða um 6%. Hér er aðeins átt við íbúðir eldri en frá árinu 2015. 

Verð á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins milli tveggja síðustu ársfjórðunga hækkaði mest á Akranesi eða um 9% og um 5% í Árborg. Frá marslokum í fyrra til marsloka í ár hefur íbúðaverð hækkað um 35% á Akranesi, 25% í Árborg, 17% á Suðurnesjum og 10% á Akureyri.