Íls: losar 106 íbúðir fyrir austan

 

Íbúðalánasjóður undirritaði í gær samning við leigufélagið Heimavelli um kaup þess á 139 fasteignum af sjóðnum í einu lagi en fyrirtækið átti hæsta tilboðið í þær í opnu söluferli sem hófst í desember síðastliðnum.

106 íbúðanna sem seldar voru til Heimavalla eru á Austurlandi. Í heild voru 504 fasteignir í fimmtán eignasöfnum auglýstar samtímis og gátu allir boðið í þær sem vildu. Alls bárust kauptilboð frá 43 ólíkum aðilum í eignirnar. Gengið verður frá sölu á fleiri eignum á næstu dögum. Sala íbúðanna 139 til Heimavalla mun hafa jákvæð áhrif á afkomu Íbúðalánasjóðs eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá sjóðnum en söluverðmæti þeirra nemur alls 1.829.000 kr.

Fleiri sölur í farvatninu


Það hefur verið yfirlýst stefna Íbúðalánasjóðs að losa um meirihluta fasteigna sjóðsins á þessu ári. Með það að augnamiði var umfangsmikið opið söluferli sett af stað rétt fyrir síðustu áramót. Opinn kynningarfundur var auglýstur og haldinn þar sem mættu yfir 100 manns, veittur var aðgangur að upplýsingaskýrslu og í kjölfarið var opnað gagnaherbergi fyrir áhugasama fjárfesta. Alls bárust á endanum 43 kauptilboð í þau fimmtán eignasöfn sem auglýst voru, en frestur til að skila inn tilboðum rann út í byrjun febrúar. Sjóðurinn fór í framhaldinu í frekari samningaviðræður við tilboðsgjafa sem áttu hæstu tilboðin.  Nú þegar hefur verið gengið að tilboðum í 356 eignir af þeim 504 sem auglýstar voru og er söluverð þeirra um 6.414 m.kr 

Jákvæð merki á landsbyggðinni
Eignirnar sem Heimavellir hafa nú keypt af Íbúðalánasjóði eru í fjórum eignasöfnum á Austfjörðum, á Vestfjörðum og á Vesturlandi. Langflestar þeirra eru á Austfjörðum. Tilboðsgjafar í eignirnar hafa talið að jákvæð merki sem nú sjáist á landsbyggðinni, breytingar í atvinnurekstri, fjölgun ferðamanna og meira framboð afþreyingar muni styðja við þessi svæði. Innkoma traustra leigufélaga mæti mikilli eftirspurn sem verið hefur eftir leigueignum á þessum stöðum að undanförnu.

Seldi 18 íbúðir á Fáskrúðsfirði
Með sölunni til Heimavalla lækkar eignastaða Íbúðalánasjóðs á Austurlandi úr 232 eignum í 126 eignir. Þá má sömuleiðis nefna að sjóðurinn seldi nýverið 18 eignir á Fáskrúðsfirði til annars leigufélags og hefur mikil eftirspurn verið eftir leigu þeirra íbúða. Samsetning eigna í hverju safni í söluferlinu miðaðist við að hagkvæmt gæti verið að reka um þær leigufélög og eru eignir í hverju þeirra að jafnaði í sama byggðarlagi. 

„Þessi samningur er afar jákvæður fyrir nokkur bæjarfélög á landsbyggðinni. Með honum er leyst úr því óvissuástandi sem verið hefur um þessar eignir nú þegar þær komast í hendur framtíðareigenda. Ég fagna því hve mikil þátttaka var af hálfu fjárfesta og okkur virðist Íbúðalánasjóður fá gott verð með því að selja eignirnar í opnu söluferli. Þá er mikilvægt að þessi sala hefur jákvæð áhrif á afkomu sjóðsins,\" segir Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs.