Sjóðurinn hagnast í fyrsta sinn í 7 ár

Hagnaður af rekstri Íbúðalánasjóðs  nam 3.431 milljón króna á árinu 2014, og er það í fyrsta sinn síðan árið 2007 að sjóðurinn skilar jákvæðri afkomu.  Þetta kemur fram á fréttavefnum kjarninn.is. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Íbúðalánasjóði þarf ríkissjóður ekki að leggja honum til eigið fé vegna reksturs á síðastliðnu ári, þrátt fyrir heimild í fjárlögum.


Þá var virðisrýrnun vegna tapsatburða í efnahagshruninu bakfærð, hagræðingaraðgerðir lækkuðu rekstrarkostnað um 113 milljónir króna á milli ára eða um 5,2 prósent og eiginfjárhlutfall sjóðsins hækkaði í 4,5 prósent og mælist nú yfir lögbundnu lágmarki sem var 4,3 prósent í upphafi árs.


Þá segir í tilkynningu Íbúðalánasjóðs að vanskil heimila hafi lækkað umtalsvert á árinu 2014 og vísbendingar séu um að sú þróun haldi áfram. Jafnframt hafi tryggingarstaða lánasafnsins styrkst töluvert og fullnustueignum í eigu Íbúðalánasjóðs fækkað um 715 á síðasta ári.