Íbúð útbúin fyrir nauðganir

Hrottalegar nauðganir voru þaulskipulagðar í íbúð í Hlíðahverfinu þar sem tæki til ofbeldisnotkunar hafa fundist.

Þetta kemur fram á forsíðu Fréttablaðsins í dag en  blaðið vitnar í heimildir innan lögreglu.

Blaðið hefur áður greint frá tveimur nauðgunum sem grunur leikkur á að hafi verið framdar í október þar sem tveir menn eru grunaðir, annar starfsmaður á hóteli í Reykjavík, hinn nemandi við frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík. Bæði fórnarlömbin voru nemar við skólann. Ekki virðist búið að víkja nemanum sem grunaður er um ofbeldið úr skólanum en hótelstarfsmaðurinn hefur verið sendur í leyfi.

Fram kemur í Fréttablaðinu að mönnunum tveimur hafi verið sleppt að lokinni frumrannsókn og ekki farið fram á gæsluvarðhald.

Frétt Fréttablaðsins má lesa hér.