Morgunblaðið og RÚV segja frá því að íbúasamtök sem kalla sig Samtök andstæðinga stóriðju í Helguvík áforma að lögsækja United Silicon sem rekur kísilver í Helguvík og Umhverfisstofnun og aðra þá opinbera aðila sem gera United Silicon kleift að halda áfram starfsemi sinni þrátt fyrir mikla andstöðu nágranna og áður óþekktan fjölda kvartana vegna mengunar.
Kvörtunum vegna lyktarmengunar linnir ekki og hefur Umhvefisstofnun fengið 250 slíkar frá því að starfsemi í kísilverinu hófst á ný en verinu var lokað í apríl vegna kvartana um loftmengun í næsta nágenni við kíslverið.
Umtalsverða umbætur voru gerðar á tækjabúnaði kísilversins og framleiðsferli þess áður en verið tók til starfa á ný.
Enn stendur samt ákvörðun Umhvefisstofnunar frá 13. mars varðandi takmörkun á starfsemi kísilversins þar sem kveður á um að framleiðsla kísilversins einskorðast við einn ljósbogaofn.
Nánar www.ust.is www.ruv.is www.mbl.is