Íbúar Skagafjarðar fóru betur út úr austan óveðrinu en Veðurstofan óttaðist.
Þar er þó ekki tíðindalaust því rafmagnslína liggur nú á þjóðvegi 1 í Skagafirði milli bæjanna Miðsitju og Sólheima.
Feykir.is segir frá þessu en er að viðgerð og verður vegurinn lokaður á meðan.
Lokun á vegum er enn víða en veðrið gengur smám saman niður í dag.
Þar sem er opið er víða flughált, einkum norðanlands.