Í þættinum Afsal sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld, eru íbúar í fjölbýlishúsum hvattir til þess að mæta á boðaða húsfundi eða aðalfundi húsfélaga. Það er vegna þess að það eru þessir fundir sem eru helstu ákvörðunartæki íbúa í fjölbýlum.
Þetta segir Páll Þór Ármann, rekstrarhagfræðingur hjá fyrirtækinu Eignaumsjón, sem sérhæfir sig í rekstri og þjónustu fyrir húsfélög. Páll segir að oft á tíðum komi það í þeirra hlut að leysa úr eða koma í veg fyrir vandamál meðal íbúa. Þar geti það liðkað fyrir, þegar hlutlaus aðili eins og þeir koma að borði. Þá hefur reynslan sýnt að oft verða stjórnarkjör og skipti innan stjórnar tíðari, þegar utanaðkomandi aðili kemur að eins og þeir. Annars sé algengt að sömu íbúar festist í stjórn húsfélaga, árum saman og jafnvel í áratugi.
Samkvæmt lögum, eiga húsfélög að boða aðalfundi fyrir apríl lok hvers árs. Þar eigi að leggja fram ársreikninga og önnur gögn, til dæmis áætlun fyrir viðhaldi og viðgerðum á húsnæði. Húsfélög séu samt eins ólík og þau eru mörg og það séu því mál af öllu tagi sem geti ratað inn á þeirra borð. Páll mun mæta aftur í Afsal til að ræða þessi mál og svarar þá spurningum sem áhorfendur Hringbrautar geta sent inn til Spyr.is. Áhorfendur eru því kvattir til að fylgjast með þættinum kl.21.30 í kvöld og senda fyrirspurnir til Spyr.is er varða málefni húsfélaga og íbúa í fjöleignarhúsum.
Afsal er endursýndur í dag og um helgina.