Íbúar á flateyri haldi sig innandyra: íbúar á suðureyri forðist hafnarsvæðið

Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð  rétt fyrir miðnætti vegna þriggja snjóflóða sem féllu á Vestfjörðum með stuttu millibili. Eitt flóðið féll í hlíðinni á móts við Suðureyri, tvö flóð féllu við Flateyri. Kröftug flóðbylgja fylgdi í kjölfarið. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir:

  • Fólk á Flateyri er beðið um að halda kyrru fyrir heima að svo stöddu.
  • Íbúar á Suðureyri eru beðnir um að halda sig frá höfninni
  • Verið er að rýma einhver hús.
  • Ekki er vitað um alvarleg slys á fólki.

Þar segir ennfremur:

„Eitt snjóflóðið fór ekki langt frá a.m.k. einu húsi en ekki er talið að neinn sé alvarlega slasaður. Ekki er vitað til þess að fleiri hafi orðið fyrir snjóflóðunum á þessari stundu.

Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið til Flateyrar. Aðgerðarstjórn er að störfum á Ísafirði. Varðskipið Þór sem var statt á Ísafirði er einnig á leið til Flateyrar.“