Íbúafjöldi á Íslandi nálgast nú 350 þúsund manna markið, en í lok 4. ársfjórðungs 2017 bjuggu alls 348.580 manns á Íslandi, 177.680 karlar og 170.910 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.840 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 222.590 manns en 126.000 utan þess.
Alls fæddust 1.020 börn á 4. ársfjórðungi, en 550 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.390 fleiri einstaklingar til landsins en frá því. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 110 umfram brottflutta, og var aldurskipting þeirra nokkuð jöfn fyrir utan aldurshópinn 20-29 ára en það var eini aldurshópurinn þar sem fleiri fluttust frá landinu en til þess. Aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.280 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu og voru 520 af þeim á þrítugsaldri.