Óvinur fólksins eða En folkefiende á upprunalega tungumálinu eftir Henrik Ibsen var frumsýnt á föstudaginn fyrir tæpri viku, þann. Verkið sem er eitt hið frægasta úr smiðju Ibsens, er skrifað seint á 19.öld. Það hefur tvisvar áður verið sett á svið í atvinnuleikhúsi hér á landi. Þá var það sett upp undir heitunum Fjandmaður fólksins og Þjóðníðingur.
Með aðalhlutverkin í nýrri leikgerð fara Sólveig Arnarsdóttir og Björn Hlynur Haraldsson. Gréta Kristín Ómarsdóttir er höfundur leikgerðarinnar og annar þýðandi verksins ásamt leikstjóranum Unu Þorleifsdóttur.
Sólveig og Gréta Kristín mæta í kvöld á Þjóðbraut til Lindu Blöndal og í samtali þeirra er ljóst að þetta rúmlega 130 ára verk gæti allt eins fjallað um íslenskt samfélag nútímans, eða hvar sem er í heiminum.
Sólveig og Gréta Kristín mæta í kvöld á Þjóðbraut til Lindu Blöndal og í samtali þeirra er ljóst að þetta rúmlega 130 ára verk gæti allt eins fjallað um íslenskt samfélag nútímans, eða hvar sem er í heiminum
Söguþráður verksins er í stuttu máli þessi:
Það eru uppgangstímar í bænum, ný og glæsileg heilsuböð laða að fjölda ferðamanna og efnahagur bæjarbúa blómstrar sem aldrei fyrr. Þegar Tómas Stokkmann læknir uppgötvar að það sem öll velmegunin grundvallast á felur í raun í sér dulda en stórhættulega meinsemd ákveður systir hans, Petra Stokkmann bæjarstjóri, að mæta honum af fullri hörku. Átök systkinanna skekja innviði samfélagsins og brátt logar allur bærinn í illdeilum.
Áleitið verk um grimmilega valdabaráttu, græðgi og þöggun, rödd samviskunnar, rétt náttúrunnar og samfélagslega ábyrgð. Á sannleikurinn alltaf rétt á sér?
Í nýrri leikgerð er bæjarstjórinn kvenkyns en upprunalega hvelfist sagan um tvo bræður, þá Tómas og Pétur.