Líkur eru á að skortur verði á raforku hér á landi eftir árið 2016 ef raforkukerfi og efirspurn verður óbreytt. Komi ekki til aukinnar raforkuframleiðslu ræður raforkukerfið ekki við meiri notkun.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Landsnets. Fréttastofa RÚV greindi frá málinu í kvöldfréttum í gær.
Í skýrslunni segir að miðað við raforkuspá þurfi að virkja 140 megawött af nýju virkjuðu afli á næsta áratug til að anna álagsaukningu almennings og fyrirtækja.
Í tilkynningu frá Landsneti segir að það dugi þó ekki einungis að auka framleiðsluna, heldur þurfi einnig að styrkja flutningskerfið svo mögulegt sé að flytja raforkuna frá framleiðanda til notanda. Nokkrir möguleikar séu í stöðunni, meðal annars að leggja línu yfir hálendið eða að hækka spennu á byggðalínum. Besti kosturinn er samkvæmt tilkynningunni að fara hálendisleiðina, með nýjum 220 kílóvolta línum.
Í frétt Ríkisútvarpsins er haft eftir ráðgjafa á sviði orkumála að mikilvægt er að flutningskerfi raforku sé sterkt og að til sé næg raforka fyrir landsmenn og fyrirtækin í landinu. Hann segir þó að landsmenn þurfi ekki að óttast raforkuskort; treysta megi Landsneti og öðrum orkufyrirtækjum til að útvega nægt rafmagn og flytja áfangastað í framtíðinni.