Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fékk greiddar að meðaltali 385 þúsund krónur á mánuði í aksturspeninga frá Alþingi í fyrra.
Það er næstur tvöfaldur lífeyrir öryrkja.
Þessi fjárhæð er meðaltal og tekur því einnig til jólaleyfa, sumarleyfis og annarra fría alþingismanna.
Í viðtali við Ríkisútvarpið í gærdsag sagðist þingmaðurinn hafa mikið að gera, ekki síst á sumrin við „fara út á meðal fólks, mæta á alls konar uppákomur og svo eru sumrin upptekin af allskonar bæjarhátíðum.“
Í máli þingmannsins – sem situr á vegum flokks sem boðar aðhald og sparnað í ríkisrekstri – kom einnig fram að skrifstofa þingsins hefði ekki gert neinar athugasemdir við fram lagðar skýrslur um ferðir á bæjarhátíðir og jafnvel í erindum Sjálfstæðisflokksins.
Þingmaðurinn bætti við að hann hefði ekki sett reglurnar, en nýtti sér bara kerfið „eins og það býður upp á.“