Brynvarður bíll er lagður af stað frá Öræfum í þeirri viðleitni að ná til manns í sjálfheldu við bæinn Lambafell undir Eyjafjöllum. Vegna fárviðris hafa björgunarmenn ekki náð til hans með öðrum hætti.
Víðir Reynisson, lögreglufulltrúi á Suðurlandi, segir að bændur í nágrenninu muni einnig reyna að hjálpa manninum en truflanir hafa verið á símasambandi í illviðrinu og leikur vafi á ástandi mannsins og aðstæðum.
Uppfært: Um par reyndist að ræða sem ekkert amaði að, en það var statt í húsi nálægt Þorvaldseysi.