Í síðasta þætti heilsugæslunnar: uppeldi barn, adhd og stjúpfjölskyldur.

Það var fróðlegur þáttur í síðustu viku þar sem börn voru í aðalhlutverki.

Læknirinn Katrín Davíðsdóttir og sálfræðingurinn Bettý Ragnardóttir ræddu við okkur um almennt uppeldi barna í nútíma samfélagi og fræddu okkur um greiningu og meðferð barna með athyglisbrest með ofvirkni.

Við heimsóttum Valgerði Halldórsdóttur félagsráðgjafa sem veitir áhugaverða ráðgjöf fyrir stjúpfjölskyldur.

Heilsuráð vikunnar gaf engin önnur en sigurvegarinn úr Allir geta dansað þáttunum og útvarpskonan Vala Eiríks.

 

Hér fyrir neðan má horfa á þáttinn.

 https://hringbraut.frettabladid.is/sjonvarp/thaettir/heilsugaeslan/heilsugaeslan-30-januar-2020

Í þessari viku verður endursýning á eldri þætti vegna flutninga Hringbrautar yfir á höfuðstöðvar Fréttablaðsins.