Í raun alveg ótrúleg viðbrögð

Ísland getur tekið á móti fleiri flóttamönnum í ár en stjórnvöld geri ráð fyrir. Þetta segir Þórir Guðmundsson, deildarstjóri Rauða krossins í Reykjavík Hann fagnar því að Íslendingar vilji taka á móti fleiri flóttamönnum, en mikilvægt sé að vandað sé til verka.
 

Þórir var gestur Morgunútgáfunnar á RÚV í morgun. Hann segir viðbrögð Íslendinga á samfélagsmiðlum við hörmulegum aðstæðum flóttafólks frá Sýrlandi ótrúleg. Yfir 180 manns hafa skráð sig sem sjálfboðaliðar til aðstoðar flóttafólki hjá Rauða krossinum um helgina. Yfir 1000 manns hafa boðið fram aðstoð sína við að taka á móti flóttafólki frá Sýrlandi í hópnum Kæra Eygló Harðar - Sýrland kallar á Facebook.

\"Þetta hefur verið að byggjast upp. Við sjáum myndir af örvæntingarfullu fólki flýja með ungabörn í fanginu yfir gaddavírsgirðingar á landamærum Grikklands og Makedóníu. Það mun nú halda áfram yfir til Serbíu og inn í Ungverjaland og reyna að komast þaðan yfir til Vestur-Evrópu,\" segir Þórir, sem segir viðbrögðin ekki koma sér á óvart. 

\"Þetta eru viðbrögðin sem Íslendingar sýna eftir jarðskjálfta, eftir eldgos, eftir ofanflóð. Nú er þetta eitthvað sem er að gerast úti í heimi. Þegar við hjá Rauða krossinum biðjum fólk um aðstoð þá bregst fólk mjög vel við og það er það sama sem er að gerast núna, og af öðrum skala en áður. Fólk er reiðubúið að gera svo margt sjálft. Það er reiðubúið að taka á móti fjölskyldu, að borga farið þeirra til Íslands. Þetta eru í raun alveg ótrúleg viðbrögð,“ sagði Þórir í þætti RÚV

Þórir segir það raunhæft að almenningur aðstoði flóttafólk með þessum hætti. Margar hendur vinni létt verk. Heilmikil þekking hafi orðið til hér á landi um hvernig sé best að aðstoða flóttafólk sem komi hingað til lands. Sveitarfélögin sjái um að taka á móti fólki, útvega þeim húsnæði og sjá til þess að börnin fari í skóla: \"Rauði krossinn stóð fyrst með stjórnvöldum í að bjóða hingað til lands flóttamönnum frá Ungverjalandi á sjöunda áratugnum. Undanfarna tvo áratugi hafa stjórnvöld nær árlega boðið hingað flóttafólki. Bæði ríkisstjórn og sveitarfélög. Rauði krossinn hefur haft ákveðið hlutverk í að aðstoða fólk við aðlögun að íslensku samfélagi og það hefur byggst upp heilmikil þekking hvernig er best að gera þetta.“

\"Ef að fólk er reiðubúið að gefa af tíma sínum, gefa húsgögn og fatnað og annað slíkt þá gengur þetta vel. Það skiptir svo miklu máli að taka vel á móti fólki og að það finni sig velkomið í nýju landi,“ segir Þórir en telur þó mikilvægt að gæta hófs: \"Við þurfum að fara milliveg. Við eigum ekki að hætta við það kerfi sem hefur virkað vel til þessa. Við höfum lagt áherslu á þetta fólk aðlagist samfélaginu og það samfélagið aðlagist því,“ segir Þórir sem segir vel koma til greina að fyrst um sinn verði flóttamenn hýstir í íþróttamiðstöðvum. „Það er hægt að byrja þannig. En það er skynsamlegast að útvega íbúðir sem fyrst. Við verðum að passa upp á það að það myndist ekki vandamál af því við erum að flýta okkur í upphafi.“