Í kjölfar afnáms fjármagnshafta

Matsfyrirtækið Standard and Poor´s (S&P) tilkynnti í gækvöld hækkun á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands í \"A/A-1\" í kjölfar afnáms fjármagnshafta. Horfur eru stöðugar segir í frétt Seðlabanka Íslands. Í samantekt S&P segir m.a. að nýlegt afnám á nánast öllum fjármagnshöftum og samningagerð við eigendur aflandskróna styrki erlenda stöðu landsins. Stöðugar horfur endurspegla þá skoðun S&P að möguleikarnir á frekari styrkingu opinberra fjámála vegi á móti hættunni af ofhitnun hagskerfisins á næstu tveimur árum.