Fiskikóngurinn Kristján Berg heldur áfram landshornaflakki sínu í þættinum Lífið er fiskur á Hringbraut í kvöld og drepur að þessu sinni niður fæti í Stykkishólmi, hjá einum helsta harðfiskverkaranum úti á landi.
Og það er hann Valli, sem framleiðir \"þennan sjúklega góða\" eins og afurð hans er jafnan kölluð, enda notar hann gamlar og viðurkenndar aðferðir við verkun sína - og fer auðvitað vel á því að ræða hana í þaula í þessum mánuði, sem kenndur er við Þorra.
Lífið er fiskur byrjar klukkan 20:30 í kvöld.