Í heimasaumuðum jogging galla með plastpoka

„Það fór aldrei á milli mála. Þegar þú varst einstaklingurinn sem kemur í heimasaumuðum jogging galla og ert með plastpoka sem skólatösku, þá náttúrulega sérðu alveg muninn,“ segir Gunnar Ingi Gunnarsson, aðspurður um hvort hann hafi verið meðvitaður um að hann hefði minna heldur en aðrir.

Gunnar Ingi er gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem hann ræðir hvernig það var að alast upp við fátækt. Gunnar Ingi ólst upp hjá einstæðri móður sinni, sem var öryrki, og lýsir þeim miklu erfiðleikum sem því fylgdi.

Hann segir móður sína hafa reynt að fela fátækt þeirra en að slíkt fari sjaldnast framhjá börnum. „Ég man alveg eftir því að ég kem inn og heyri að mamma, hún er bara að gráta. Hún herpist upp þegar hún áttaði sig á því að ég væri kominn og lét sem ekkert væri. En börn sjá alveg hluti. Þau átta sig alveg á því að það er eitthvað að. Það er bara þannig. Dóttir mín, hún sér alltaf á mér hvort að ég sé eitthvað dapur eða ekki. Þó ég sé að reyna að vera eitthvað voðalega kátur, þá er bara: „já einmitt pabbi, ég sé í gegnum þig.““

795 börn eru í þeim fjölskyldum sem fengu fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg í fyrra og fengu alls 467 barnafjölskyldur slíka aðstoð. Á sama tíma bjuggu á annað þúsund barna í fé­lags­legu leigu­hús­næði á veg­um borg­ar­inn­ar en 259 barna­fjöl­skyld­ur eru á bið eft­ir leigu­hús­næði.

Þegar Gunnar Ingi var níu ára gam­all fór hann þrisvar á þremur mánuðum í Kvennaathvarfið vegna aðstæðna heima fyr­ir. Í þriðja skiptið lýsir hann því sem virðist hreinlega hafa verið taugaáfall. „Þegar ég fer þarna í þriðja skiptið, ég man ekkert eftir því. Ég man varla eftir ferðinni þangað upp eftir. Eina sem ég man er að ég grét bara viðstöðulaust. Ég var bara í einhverju hálfgerðu móðursýkiskasti. Bróðir minn var þarna með mér, við fórum tveir þarna með. Hann er fimm árum eldri en ég. Ég man það ósköp vel að okkur leið ekki vel, hvorugum okkar. En hann var náttúrulega mikið sterkari en ég.“

Nánar er rætt við Gunnar Inga í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.

Rétt er að benda á að að ekki er átt við föður Gunnars Inga, Gunnar Sigurðsson, sem geranda þegar Gunnar Ingi ræðir um að hafa farið á kvennaathvarfið með móður sinni. Gunnar Ingi áréttar að á engan hátt hefur faðir hans komið nálægt neinu sem viðkemur heimilisofbeldi á neinn máta í sínu lífi. Faðir Gunnars Inga hafi einungis verið honum stuðningur í lífi og tilveru og hefur ekkert með lýsingu Gunnars Inga á heimilisaðstæðum frá yngri árum að gera.