„í gærkvöldi var bankað [...] í gættinni var gamall óvinur með háværa rödd“

„Í gærkvöldi var bankað á dyrnar á Sölvastöðum. Í gættinni var gamall óvinur með háværa rödd sem ég hef með mikilli æfingu í mörg ár náð að sjá sem vin og drifkraft til góðra hluta og fengið hann til að lækka róminn lítið eitt og koma í samstarf með mér.“

Þannig hefst áhrifarík frásögn eftir fjölmiðlamanninn og rithöfundinn Sölva Tryggvason sem hann deildi með vinum sínum á samfélagsmiðlum. Bók Sölva, Á eigin skinni, sló í gegn á síðasta ári en þar opnaði hann sig um kulnun í starfi og hvernig honum tókst að sigrast á kvíðaröskun. En kvíðinn hefur ekki yfirgefið Sölva fyrir fullt og allt enda nánast eilífðarvinna fyrir marga að halda honum í skefjum. Sölvi lýsir endurkomu kvíðans með þessum hætti:

„Það kom semsagt allt í einu og upp úr þurru yfir mig þessi sterka og hráa tilfinning um að ég sé nú svona yfir höfuð hálfgerður pappakassi sem sé ekki að gera neitt af viti í lífinu. Í morgun kom hún aftur og í ljósi fáránleikans sem ég kem betur að á eftir ákvað ég að setjast niður og skrifa smá hugleiðingar.

Þessi rödd sem bankaði upp á í gær og aftur í morgun var í mörg ár minn helsti óvinur og í raun lamandi kraftur i mínu lífi á löngum tímabilum. En með blöndu af vilja og mildi er ég smám saman farinn að læra að elska þessa tilfinningu og sjá hana fyrir það sem hún er. Sambland af fallegum drifkrafti úr varnarkerfi heilans og gamalt bilað forrit sem var hannað af alls konar vanmætti í barnæsku.“

Árið 2019 var eitt það besta sem Sölvi hefur upplifað og rekur hann það að mestu til bókarinnar og viðbragðanna í kjölfarið. Þá hélt hann 150 fyrirlestra tengt efninu. Þá hljóp hann Laugaveginn sem er um 54 kílómetrar, ferðaðist til þriggja heimsálfa svo fátt eitt sé talið upp. Sölvi segir:

„Ég er ekki að skrifa allt þetta að ofan til að stæra mig af eigin afrekum (jú ok smá...vinnum í hégómanum 2020), heldur til þess að tengja það við röddina sem bankaði upp á í gær.

Upptalningin á árinu 2019 hjá mér gefur til kynna á nánast alla mælikvarða að ég sé einstaklingur sem nær framúrskarandi árangri á mörgum sviðum og enska orðið ,,Successful\" kemur fljótt upp.

Ef mér getur liðið á þennan hátt strax eftir að hafa átt ár sem var algjörlega stórkostlegt í alla staði hlýtur þessi tilfinning að skjóta upp kollinum hjá býsna mörgum.“

Sölvi bætir við að hann hafi hitt fjölda fólks á síðasta ári sem hafi verið fast í vanlíðan í áraraðir vegna þess að „hráar tilfinningar sem kalla mætti einhvers konar niðurrif eru orðnar að algjörlega lamandi afli.“ Sölvi bætir við:

„Gleymum því ekki að framfarir felast ekki í því að upplifa aldrei óþægilegar tilfinningar, heldur að nýta þær til að skoða gömul forrit, finna dýptina sem þeim fylgir og láta þær ekki stýra tilfinningum eða heltaka lífið.

Lífið er alls konar og því meiri sem færnin verður í að sjá þetta allt saman sem hluta af þessu stórkostlega púsluspili, því betur áttar maður sig á því að það sem virkar í fyrstu svart, er stundum hvítt þegar betur er að gáð.“

„Árið 2019 var árið þar sem það sem ég hélt að hefði verið minn mesti veikleiki (langvarandi kvíði/ tilgangsleysi/ depurð/síþreyta og allt hitt) varð að mínum mesta styrkleika, þar sem ég fékk gjöfina til að miðla þessu öllu saman og hjálpa þar með öðrum,“ segir Sölvi og bætir við að lokum:

„Ég er því miður ekki einhyrningurinn sem egóið mitt vill að ég sé og þess vegna er ég algjörlega sannfærður um að ef ég gat snúið veikleikum upp í styrkleika, þá geta það allir.

Sendi út í árið alla þá ást sem ég á til og innilegt þakklæti til ykkar allra fyrir að hafa hjálpað mér á árinu, stutt við bakið á mér og gert líf mitt fallegra og betra...“

Hér má lesa pistil Sölva í heild sinni.