Reykjavíkurdætur eru mættar með nýtt lag sem nefnist „Sirkus“ en Steinunn Jónsdóttir segir lagið sérstaklega hentugt til þess að opna tónleika.
Þetta kemur fram í viðtali við Fréttablaðið en vinsældir Reykjavíkurdætra eru miklar um þessar mundir, þá sérstaklega eftir að þær höfnuðu í öðru sæti í Söngvakeppninni hér landi.
„Við höfum hugsað þetta sem sérstakt opnunarlag, til þess að byrja hverja og eina sýningu af alvöru krafti,“ segir Steinunn Jónsdóttir, rappari og söngvari. Lagið hefst á sirkusstjóra sem kynnir dæturnar á svið í alvöru stemningu. Lagið má hlusta á neðst í fréttinni.
„Við hugsum nefnilega alltaf mikið um sviðsetninguna hjá okkur og okkur langaði að semja alvöru neglu, sem er ekkert eðlilega kröftug til að hefja tónleika á,“ útskýrir Steinunn.
Reykjavíkurdætur munu halda þónokkra tónleika hér á landi í ár en þær hafa verið iðnari við að spila erlendis síðustu ár.
Dæturnar eru gríðarlega vinsælar hjá ungu kynslóðinni og héldu fjölskyldutónleika í Iðnó í maí. „Talandi um að vera barnastjörnur, þetta er einmitt í fyrsta sinn sem við gefum út tvær útgáfur af einu lagi, en önnur útgáfan er aðeins útvarpsvænni,“ segir Steinunn hlæjandi.
„Um daginn spiluðum við fyrir 5.000 stelpur á Símamótinu og allar sungu með. Það er stórkostlegt að ná til svona margra og geggjað að nú sé komin fram kynslóð sem elst upp við það að það sé eðlilegt að konur séu alls konar, að gera alls konar tónlist og rappa,“ segir Steinunn.
„Við erum með svo margar flottar fyrirmyndir núna í tónlistinni. Við höfum starfað í tæp tíu ár en þetta er svona í fyrsta sinn sem samfélagið hefur tekið okkur í sátt og núna er kannski fyrsta kynslóðin að fara að alast upp við að þetta sé eðlilegt og stelpur geta látið sig dreyma um þetta án þess að verða kvíðnar vegna mótlætis. Því það hefur aldeilis minnkað og við finnum voða lítið fyrir því í dag og það er geggjað.“ segir hún