Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings um veðurhorfur í dag og næstu daga. Þar segir enn fremur: Seinnipartinn í dag er semsagt útlit fyrir að lægðin sé orðin mjög myndarleg og verður þá komin suðaustan stormur af hennar völdum á öllu landinu. Með fylgir úrkoma, sums staðar sést slydda eða snjókoma í fyrstu, en megnið af úrkomunni sem fellur í dag verður rigning og verður hún í talsverðum mæli sunnan- og vestanlands. Það hlýnar hjá okkur og í kvöld er útlit fyrir 5 til 10 stiga hita um allt land.
Á morgun er útlit fyrir sunnanátt, strekkingur eða allhvass vindur með skúrum og síðar éljum og kólnar smám saman. Þurrt að kalla á Norðurlandi. Rétt er taka það fram að austanlands verður enn hvöss sunnanátt með talsverðri rigningu og hlýindum fram að hádegi á morgun. Þar er um að ræða leifarnar af veðri dagsins í dag.
Stormurinn í dag er sá síðasti í kortunum í bili. Útlit er fyrir að hæðir ráði ríkjum við landið í næstu viku og að þá verði veður tiltölulega rólegt og lítið um úrkomu.