Í dag hefst gæsaveiði

Veiðar á grágæsum og heiðagæsum hefjast í dag sunnudaginn 20. ágúst.

Hinn 1. september hefst veiðitímabil anda og veiði á helsingja eystra hefst hins vegar ekki fyrr en 25. september.

Veiðimenn eru minntir á veiðreglur og það sem óleyfilegt er að gera í skotveiði. Þeir sem stunda skotveiði þurfa að hafa skotvopnaleyfi og veiðikort.

Til að afla slíkra leyfa og réttinda þarf að sækja tvö námskeið um meðferð skotvopna og um veiðar í náttúru Íslands.

Um þetta er nánar skrifað á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

[email protected]