Fimm menn hafa kært ákvörðun lögreglustjórans á Vestfjörðum um að hætta rannsókn á meintri fjárkúgun í Bolungarvík. Fréttablaðið fjallar um málið á forsíðu í dag. Rannsóknin hafði staðið yfir í rúmlega tvö ár þegar hún var felld niður.
Fréttablaðið greinir frá því að upphaf rannsóknarinnar hafi verið ásakanir um að pólskur verkstjóri hjá útgerðarfyrirtækinu Jakobi Valgeiri ehf hafi tekið jafnvirði um 150 þúsund króna af öðrum Pólverjum sem hann hafði milligöngu um að útvega vinnu. Um 20 Pólverjar eru sagðir hafa greitt verkstjóranum þessa upphæð, í bréfi sem sent var Bæjarins besta, og rannsakað var af lögreglu. Fram kemur í Fréttablaðinu að mansalsteymi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafi aðstoðað við rannsóknina.
Mennirnir fimm sem kæra niðurfellingu rannsóknar til ríkissaksóknara eru meintir brotaþolar í málinu, segir í Fréttablaðinu. Ríkissaksóknari þarf að taka afstöðu til kærunnar innan þriggja mánaða.