Hyllir undir éljagang um næstu helgi

Talsverður belgingur verður á landinu næstu daga og virðist sem vetrarlægðirnar hafu fundið sér haganlega rás norður eftir miðju Atlantshafi með tilheyrandi leiðindum fyrir landsmenn sem margir, ef ekki allir, eru farnir að þrá vorlegar stillur og hlýindi. Rigningu næstu daga fylgir suðaustan hvassviðri sem slær í storminn á stöku stað í dag og á morgun, einna síst norðaustanlands og verður hiti frá 2 gráðum og upp í 10 gráður. Um næstu helgi má búawst við útsynningi með enn einum éljaganginum, þótt þá verði þrír dagar liðnir frá því bannað er að nota nagladekk á vegum landsins.


Og talandi um vegina sem hafa verið viðsjárverðir um nýliðna helgi. Helstu þjóðleiðir sunnan- og vestanlands eru að verulegu leyti auðar. Enn er þó mikil hálka á Holtavörðuheiði þar sem 12 bíla árekstur varð í gær með líkamstjóni og verulegum skemmdum á biðreiðum. Á Vestfjörðum er þungfært á Kleifaheiði og Mikladal eins og er. Snjóþekja og greiðfært er í djúpinu en snjóþekja er á Þröskuldum og Klettshálsi. Þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði og Ennishálsi. Ófært er á Hálfdáni en unnið er að mokstri.


Það eru hálkublettir á flestum vegum á Norðurlandi. Hálka er á Öxnadalsheiði. Hálkublettir er á flestum aðal leiðum á Norðurlandi eystra og Austfjörðum en hálka er á Jökuldal og í Oddskarði en þar éljar einnig. Autt er með suðaustursströndinni.