Sigurjón Jónasson, formaður Félags flugumferðarstjóra, og Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, mætast á Þjóðbraut Hringbrautar í kvöld.
Eðli málsins samkvæmt hafa þeir ólíkar skoðanir á kröfum flugumferðarstjóra. Af máli þeirra að merkja er fátt sem bendir til að samningar séu að takast.
„Við erum í vægustu aðgerðum,“ segir Sigurjón. Afleiðingar þeirra eru samt gífurlegar. Þorsteinn bendir á að fámennar stéttir, sem hafa með aðgerðum mikil áhrif, nýti stöðu sína með þeim afleiðingum að nú þriðja sumarið í röð, séu deilur við starfsmenn sem tengjast Keflavíkurflugvelli, með miklum afleiðingum.