Breski Verkamannaflokkurinn hyggst styðja aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Bretar eigi að ganga úr Evrópusambandinu, samþykki ríkisstjórn Theresu May ekki tillögur flokksins að breytingum á úrgöngusamningi May og ESB.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segist enn vongóð um að ná samkomulagi um úrgönguna úr Evrópusambandinu fyrir lok næsta mánaðar. Hún sagði í ávarpi í dag að ásættanlegur samningur væri innan seilingar og að hún hefði fulla trú á að ná samningi við Evrópusambandið sem meirihluti breska þingins gæti sætt sig við.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/hyggjast-stydja-adra-thjodaratkvaedagreidslu