Landvernd afhenti umhverfisráðherra og forstjóra Umhverfisstofnunar undirskriftir 5431 einstaklinga í umhverfisráðuneytinu í dag. Með undirskriftunum þau voru hvött til að hraða vinnu við friðlýsingu Drangajökulsvíðerna, en Náttúrufræðistofnun Íslands hefur lagt til að þau verði sett á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár.
Tillaga Náttúrufræðistofnunar nær til alls áhrifasvæðis fyrirhugaðrar Hvalárvirkjunar. Undirskriftasöfnunin hefur staðið frá því í febrúar en ekki hefur verið mögulegt að kynna hana fyrir landsmönnum nema með kynningum á samfélagsmiðlum og aðsendum greinum í fjölmiðlum vegna fjársskorts að sögn Landverndar. Hægt að skrifa undir á askorun.landvernd.is