Hvort ræður þjóðin eða þú?

Kaupmaðurinn Margrét Kristmannsdóttir fyrrverandi formaður Samtaka verslunar og þjónustu biður Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins að fara vel með trúverðugleika sinn í nýjum pistli á hringbraut.is í dag. Þar tekur hún undir fræg orð Guðrúnar Pétursdóttur, frænku Bjarna, sem trúði honum fyrir því við mótmælastöðu átta þúsunda Íslendinga á Austurvelli á sunnudag að trúverðugleikinn væri einmitt "það dýrmætasta sem maður á."


Margrét skrifar til Bjarna: "Þú sagðir á Alþingi í gær: "Meirihlutinn ræður". Við erum mörg sem trúum því ekki fyrr en við tökum á því að með meirihluta eigir þú við ríkisstjórnina en ekki þjóðina."


Hún biður Bjarna um að svara einföldu krossaprófi í stað þess að týnast í "orðagjálfri og ómöguleika." 


Og spurning kaupmannsins er þessi: "Ætlar þú að efna eftirfarandi loforð sem birtist í stefnuskrá flokksins fyrir alþingiskosningar árið 2013: "XD - Þjóðin tekur ákvörðun um aðildarviðræður við ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu á kjörtímabilinu..."


Og Margrét ætlar að bíða eftir svari.


Þess má geta að loforðið var tekið út af heimasíðu Sjálfstæðisflokksins í dag.