Hvorki reið né gröm

„Ég er ekki að segja frá þessu vegna þess að mig skortir athygli, né vegna reiði eða gremju, heldur finnst mér bara eðlilegt að segja fá því ef maður er hættur að skipta sér af einhverju sem maður tók þátt í að búa til”, skrifar Birgitta á facebook síðu sína og að innan skamms muni birtast grein eftir hana í Stundinni þar sem hún útskýrir frekar hvers vegna hún telur Pírötum hafa mistekist og hvers vegna leiðir skildu.

Hún skrifar að það hafi verið lag eftir hrun að koma á alvöru breytingum, útrýma ójafnrétti og ójöfnuði en það hafi ekki tekist. “Og mun ekki takast fyrr en kannski þegar næsti stórviðburður hreyfir við fólki og grundvallar meðvitund um þeirra eigin afkomu”, skrifar hún.