Hvorki katrín né sigurður ingi telja það tímabært að ræða sölu íslandspósts

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra sagði í samtali við RÚV að hún sæi enga ástæðu til þess að selja Íslandspóst á þessum tímapunkti. 
 
„Þetta er ekki valkostur sem ég hef séð fyrir mér. Ég lít svo að Íslandspóstur sé núna í því ferli að gera miklar umbætur á rekstrinum sem ég tel löngu tímabærar og nauðsynlegar,“ segir Katrín.
 
Katrín segir einnig að hugmyndir um sölu Íslandspósts hafi ekki enn verið ræddar innan ríkisstjórnarinnar. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra sagði einnig i samtali við RÚV að það væri ekki tímabært að selja Íslandspóst.  Að sögn Katrínar hafi tillaga Bjarna ekki komið henni á óvart þar sem ríkisstjórnin sé stjórn þriggja ólíkra flokka og það sé skiljanlegt að skoðanir þeirra fari ekki alltaf saman.
 
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra viðraði hugmyndir um sölu Íslandspósts í morgun og hefur meðal annars Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins tekið undir hugmyndir hans. Íslandspóstur skilaði um 250 milljóna króna tapi yfir árin 2014 til 2018 og þurfti íslenska ríkið að lána fyrirtækinu 1.500 milljónir til að koma rekstrinum í lag. Fyrir lán ríkissjóðs var viðskiptabanki Íslandspósts búinn að stöðva frekari lán fyrir fyrirtækisins. Ríkisendurskoðun gerði úttekt á rekstri fyrirtækisins þar sem meðal annars kom fram að fyrirtækið hefði fjárfest umfram greiðslugetu.